Atvinnulíf Grindavíkur
Stofnfundur Föstudaginn 27. nóvember kl. 12:00 í Gjánni – súpufundur, allir velkomnir

Félag atvinnulífsins í Grindavík

Atvinnulífið í Grindavík fær eina rödd

Fyrirtækjadrifinn samstarfsvettvangur sem eflir samvinnu þvert á atvinnugreinar og eykur sameiginlega verðmætasköpun í Grindavík.

Gerast stofnfélagi Lesa meira

Stofnfundur

Föstudagur 27. nóvember

Kl. 12:00 · Gjáin

Samþykktir afgreiddar og fyrsta stjórn kjörin. Súpa í boði.

Um félagið

Fólkið þarf fyrirtækin og fyrirtækin þurfa fólkið heim

Atvinnulíf Grindavíkur er sjálfstætt félag fyrirtækja, einyrkja, stofnana og félagasamtaka sem tengjast Grindavík, óháð stærð eða atvinnugrein.

Félagið er vettvangur til að vinna saman að verkefnum, deila þekkingu og tala einni röddu fyrir atvinnulífið á svæðinu.

Sjálfstætt Óháð Óhagnaðardrifið Opið öllum

Áherslur

Það sem félagið vinnur að

1

Samstarf og tengslanet

Tengir saman fólk og fyrirtæki úr sjávarútvegi, ferðaþjónustu, iðnaði, skapandi greinum og þekkingariðnaði.

2

Rödd atvinnulífsins

Sameiginlegur málsvari atvinnulífsins gagnvart opinberum aðilum og stoðkerfi.

3

Sameiginleg verkefni

Verkefni sem ekkert eitt fyrirtæki nær eitt og sér, unnin í verkefnamiðuðum hópum.

4

Samnýting innviða

Aðstaða, samvinnurými og vinnustaðaklasi sem nýtist öllum.

5

Nýsköpun

Ný tækifæri og fleiri afleidd störf á svæðinu.

6

Samræmd ímynd

Sameiginleg markaðssetning og vöruþróun sem nýtir auðlindir og sögu svæðisins.

Aðild

Vertu með frá byrjun

Aðild er opin fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og einyrkjum sem tengjast Grindavík. Árgjald fer eftir stærð rekstrar og er ákveðið á stofnfundi.

  • Eitt atkvæði á hvern félagsaðila
  • Þátttaka í vinnuhópum og verkefnum
  • Hófleg árgjöld eftir stærð

Skráðu áhuga á aðild